Enginn sannur mótmælandi

Þrátt fyrir að ég sé friðsamur mótmælandi og allir sem ég þekki séu það líka þá get ég ekki samþykkt þá rökvillu að enginn þeirra sem beiti ofbeldi sé sannur mótmælandi eins og sumir virðast halda fram.  Þó maður sé andsnúinn aðferðum fólks getur maður ekki útilokað að þeir séu með nákvæmlega sömu markmið og maður sjálfur. En líklega er það alveg rétt að flestir ofbeldisseggirnir hafi haft ofbeldið sjálft að markmiði og lítið hugsað um málstaðinn.

En ætli Maggi hafi ekki bara annars talað almennt fyrir mína hönd um ofbeldi í gær.