Slæm byrjun?

Tugir Sjálfstæðismanna í bloggheimum hafa vegið og metið fyrsta dag ríkisstjórnarinnar á yfirvegaðan hátt og komist að þeirri niðurstöðu að þetta sökki nú allverulega. Ég hef í kjölfarið gefið upp alla vona, þetta er ómöguleg ríkisstjórn. Hún fékk sinn séns, rúmir 24 tímar og engu hefur verið áorkað. Raunar fékk síðasta ríkisstjórn ríflega hundrað daga til að afreka eitthvað en það var þá, þetta er nú. Héðan í frá fá allar ríkisstjórnir 24 tíma, hvorki meira né minna, eftir það er þeim hent nema að skýr árangur hafi náðst.