Bitrir smáfuglar og Vantrúarbröns

Dálkurinn þar sem fáránlegustu lygar AMX eru birtar eru kenndar við fuglahvísl. Það er merkilegt að sjá hve bitrir smáfuglarnir eru út í Egil Helgason í dag. Ætli slakt gengi manna í prófkjörum sé að hafa áhrif?
Það var óneitanlega betri stemming á heimilinu í dag þar sem við fengum Vantrúarseggi í bröns. Það voru pizzur, ostabrauð, múffins, brauð og álegg í boði. Ég var orðinn hálffúll hve seint fólkið var en var fljótur að jafna mig þegar öll sæti fylltust. Allt kláraðist og mikið spjallað og mikið gaman. Þarna kom líka Eldey Gígja sem við vorum að sjá í fyrsta skipti. Hún var voða róleg og sat heillengi hjá mér.