Lilja og niðurfelling

Mér finnst nálgun Lilju Mósesdóttur á niðurfellingu skulda ólíkt skynsamlegar framsett heldur en Framsóknar og Tryggva Þórs. Einhver atriði þarna þarf vissulega að útfæra nánar áður en ég fell alveg fyrir þessu og þessi tala sem hún nefnir er ekkert heilög. Mér finnst líka gott að hún lætur ekki eins og þetta eigi ekki eftir að kosta neitt enda frábið ég mér slíkar töfralausnir. Allavega er þetta vel þess virði að lesa í gegn.