Fyrir síðustu Alþingiskosningar átti sér stað umræða sem mér fannst alveg fráleit en einnig mjög afhjúpandi fyrir þá sem komu að henni.
VG sendi styrktarbeiðni á stærstu fyrirtæki landsins – valdi bara eftir stærð og engu öðru. Meðal þeirra sem VG sendi beiðni til var álfyrirtæki.
Af einhverjum ástæðum ákvað álfyrirtækið að „leka“ því að VG væri að biðja um styrk. Upp spratt umræða þar sem ýmsir, aðallega fólk sem tilheyrði Sjálfsstæðisflokknum, fordæmdu það að VG væri að eltast við að fá styrk frá álfyrirtæki.
Hvers vegna átti VG ekki að biðja um styrk frá álfyrirtæki? Jú, af því að baráttumál VG pössuðu ekki við hagsmuni álfyrirtækisins.
Flokkar eiga sumsagt bara að biðja um styrk frá fyrirtækjum sem þóknast málefni flokksins. Samkvæmt þessu kerfi mun sá flokkur sem helst þóknast fyrirtækjum að fá langmesta styrki.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk merkilegt nokk langmest af styrkjum. Samkvæmt hugmyndafræði þeirra Sjálfsstæðismanna sem tjáðu sig á sínum tíma um styrkbeiðni VG til álfyrirtækisins hefur flokkurinn væntanlega séð að baráttumál sín hugnuðust þessum fyrirtækjum vel.
Ég tel að sjálfssögðu að ef fyrirtæki er að styrkja stjórnmálastarf sé það af samfélagslegri vitund en ekki til þess að fá sín baráttumál í gegn og fyrir síðustu kosningar notaði VG einmitt þá hugmyndafræði þegar sótt var um styrki.
Reyndar segja styrkveitingar fyrir síðustu kosningar ákaflega lítið vegna þess að þá var hámark 300 þúsund á hvað hvert fyrirtæki gæti gefið. Hvað ætli Sjálfsstæðisflokkurinn hafi fengið inn á bankareikninginn daginn áður en lögin tóku gildi?
Hvað ætli einstakir þingmenn hafi fengið mikinn stuðning í prófkjörum? Hvers vegna er til fólk sem eyðir milljónum í prófkjör? Er þetta fjárfesting sem skilar að lokum arði?
Þetta er í raun löng færsla til að spyrja spurningar sem allir vita svarið við: Voru mörg þeira fyrirtækja sem styrktu Sjálfsstæðisflokkinn í raun að borga til að þeirra hagsmunamál yrðu í fyrirrúmi á Alþingi?
Og virkaði þetta kerfi ekki bara dásamlega?
