Málskilningur Hjartar Joð

Hjörtur J. Guðmundsson segir að Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor hafi játað óheiðarleika þegar hann sagði að það væri „heiðarlegra, þegar manni finnst svo mikið liggja við, að segja sína skoðun tæpitungulaust [um Evrópumál]“. Hjörtur getur ekki skilið þetta öðruvísi en að Baldur  „telji sig hafa verið óheiðarlegan“ þegar hann hefur tjáð sig um Evrópumál.

Íslensk tunga, sem Hirti þykir líklega ákaflega vænt um, er honum greinilega ekki töm. Ef ég segi til dæmis að mér þyki Honey Nut Cheerios betra en venjulegt Cheerios þá þýðir það ekki að mér þyki venjulegt Cheerios vont.

Það að Baldri þyki en nálgun heiðarlegri en önnur þýðir ekki að sú sem honum þykir síðri sé óheiðarleg.

Ég hefði getað bent Hirti á þetta í kommentakerfi hans ef hann teldi sér óhætt að leyfa athugasemdir. En það er auðveldara að hafa rangt fyrir sér þegar enginn fær að benda á villur manns. Hjörtur fer ekki að hafa rétt fyrir sér ótilneyddur.

En hefur annars einhver nokkru sinni verið í vafa um að Baldur sé hrifinn af Evrópusambandinu?