Heimsfaraldur verður að fjölmiðlaflensu hjá StebbaFr

Fyrir nokkrum dögum rann ég yfir BloggGáttina og sá fyrirsögnina Svínaflensan verður heimsfaraldur hjá aðal Moggabloggaranum. Ég hugsaði: “týpískt”. Í dag var á forsíðu Morgunblaðsins, á plássinu sem þeir nota undir uppáhaldsbloggarana sína, blogg frá þessum sama bloggara þar sem stóð: Er svínaflensan fjölmiðlaflensa? Þessir bloggtitlar virtust illsamrýmanlegir þannig að ég kíkti inn til að sjá hvað kallinn hefði nú sagt um málið. Ég fann hvorki tangur né tetur af fyrri færslunni sem ég var þó viss um að hann hefði skrifað. Ég notaði þá Google í leit og að sjálfssögðu hafði ofur-Moggabloggarinn eytt fyrri færslunni enda er hún væntanlega óhentug núna. Ykkur til fróðleiks er hér skjáskot af eyddu færslunni úr minni Google.

stebbifrsvinaflensan