Af bindum og hefðum

Hefðir eru ekki góðar af því að þær eru hefðir. Hefðir geta verið góðar eða slæmar og við dæmum þær eftir því.

Sjálfum finnst mér bindi ekki merkileg hefð. Mér finnst þau kjánaleg.

Almennt tel ég það líka misskilning að maður sýni virðingu með klæðaburði sínum. Það er bókstaflega ekkert yfirborðskenndara en fatnaður.