Star Trek gellurnar vilja mig

Ég var að fá upp auglýsingar frá stúlkum sem vilja komast í bólið með mér. Meðal annars var það Isis í Kópavogi. Eftir að hafa pælt aðeins í því hvernig þessar stúlkar gátu komist að því að ég væri þeim boðlegur bólfélagi þá fattaði ég það. Þær hafa greinilega notað einhvers konar lykilorðatengingu. Ég var að leita að upplýsingum um Star Trek – The Next Generation og það er greinilega það sem heillar þær. Í hvert skipti sem einhver með íslenska IP-tölu leitar að upplýsingum um þá þáttaröð poppar væntanlega upp auglýsing frá þeim. Ég get ekki komist að annarri ályktun.