Raðmorðinginn Jessica Fletcher

Það er svo stórkostlegt að hugsa til þess að það hafi verið gerðir 264 þættir af Murder She Wrote. Í öllum þáttunum, sem ég sá, flækist þessi geðþekka kona Jessica Fletcher í morðmál sem hún síðan leysir. Ég get ekki skilið hvernig er hægt að komast að annarri niðurstöðu en að hér hafi verið á ferðinni raðmorðingi sem var einstaklega lagin við að koma sökina á aðra. Ég vil sjá crossoverþátt þar sem Criminal Minds fólkið tekur sig til og rannsakar þessa konu. Það yrði stórkostlegur þáttur þar sem Jessica myndi loksins taka niður grímuna og játa á sig öll þessi 264+ morð (stundum voru fleiri en eitt í þætti). Hver myndi ekki horfa á það? Must see tv.