Spurt að leikslokum – spurningum svarað

Um daginn skrifaði ég um nýju pakkana sem einnig má nota sem viðbætur við Spurt að leikslokum. Síðan þá hef ég fengið spurningar um hvort þetta sé allt saman nýtt. Svarið er:

Að gefnu tilefni er rétt að taka fram að allar spurningarnar í nýju Spurt að leikslokum stokkunum eru glænýjar og hafa aldrei birst á prenti áður. Að öðru gefnu tilefni skal tekið fram að Ekki spurning ehf. kemur hvergi við sögu í skýrslu rannsóknarnefndar alþingis og því ætti enginn að hafa samviskubit yfir því að fara á www.spurtadleikslokum.is og panta nýju stokkana á mögnuðu forsöluverði: aðeins 1.490 krónur stykkið!

Fjórar nýjar týpur. Frábært tilboð.