Eftir að hafa hlustað á hlaðvarpsþátt um sögu mannspila – hins hefðbundna spilastokks (The History of the English Language – House of Cards) fór ég að rifja upp hvernig maður spilar kasínu. Við barnabörnin spiluðum það oft við afa og ömmu. Ég hafði hins vegar aldrei spilað það við strákana sem er synd og skömm.
Ég leitaði og fann allskonar reglur. Flestar voru gjörólíkar því sem við spiluðum í Stekkjargerðinu. Þetta ætti ekki að koma á óvart þar sem kasína hefur verið spiluð á Íslandi frá hið minnsta 19du öld. Það sést í öðru bindi af bók Jóns Árnasonar Íslenzkar gátur, skemtanir, vikivakar og þulur sem gefin var út árið 1887. Spilið hefur síðan gengið manna á millum og breyst.
Ég spjallaði líka við fjölskylduna, bæði Hafdís systir og Eyþór Gylfa hjálpuðu. Að lokum fann ég góðar reglur, kunnuglegar að mestu. Það að þær komu frá Dalvíkurskóla kom ekki á óvart. Ekki var heldur neitt óvænt við niðurstöðurnar þegar ég rakti konuna sem er skráð fyrir þeim, Dóróþeu Reimarsdóttur, saman við mig í Íslendingabók og sá að hún á djúpar svarfdælskar rætur.
Það sem var ólíkt var helst tvennt. Annars vegar að hún talar um að 20 stig þurfi til að sigra en í Stekkjargerðinu voru þau 21. Hins vegar segir hún að spilarar fái fimm spil á hönd en ég er vanur fjórum spilum. Það tel ég reyndar vera mikilvægari reglu af því að fjórir ganga upp í 52. Ef þú ert hins vegar með fjögur spil í borði og hvor spilari fær alltaf fimm spil þá gengur það ekki upp (≠52) sem þýðir að lokagjöfin verður bara fjögur spil á mann. Þannig að ég held fjögur spil á hendi sé hiklaust réttara þó flest annað geti verið álitamál.
Reglurnar hérna eru byggðar á grunni Dóróþeu.
Gildi spilanna
Spilin hafa öll tölugildi sem notuð eru til að reikna hvernig má taka slagi. Tvistur er 2, þristur er 3 og svo framvegis. Kóngurinn er 13, drottningin 12 og gosinn 11. Ásinn gildir bæði 1 og 14.
Að taka slagi
Þú getur tekið sexu með sexu, ás með ási. Þú getur líka tekið ás með því að leggja tölugildi hans og við tölugildi annars spils. Þannig að þú getur tekið ás (1) og drottningu (12) með kóngi (13). Ef það eru tvistur, þristur og fimma í borði þá gætirðu tekið hvoru tveggja (2+3 & 5) með einni fimmu.
Gangur spilsins
Stokkið spilin. Gjafari gefur hinum fyrst 2 spil, sjálfum sér 2 spil, leggur 2 upp í loft á borðið, hinum 2 spil, sjálfum sér 2 spil og leggur aftur 2 upp í loft á borðið. Þá er hvor með 4 spil og 4 spil snúa upp í loft á borðinu. Afgangurinn af spilunum er geymdur og gefið aftur þegar báðir eru búnir með spilin sem þeir fengu á hendina.
Sá sem ekki gaf á að gera fyrstur og svo er skipst á að gera. Hann má taka eins mörg spil úr borðinu og hægt er með einu spili sem hann hefur á hendi. Ef hann getur ekki tekið slag þarf hann að leggja niður spil.
Þegar öll spilin eru búin af hendi er gefið aftur eins og áður nema að engum spilum er bætt við í borðið (jafnvel þó engin spil séu eftir þar).
Þegar síðasta umferðin er búin (þegar spilin úr stokknum hafa öll verið gefin) og sá sem fékk síðasta slaginn hefur hirt síðustu spilin af borðinu, er farið í stigatalningu. Ef enginn hefur náð 21 þá eru spilin stokkuð upp á nýtt og sá sem ekki gaf síðast skal vera gjafari núna.
Stigatalning
Spaða tvisturinn kallast litla kasína og tígul tían kallast stóra kasína.
- Litla-kasína gefur 2 stig
- Stóra-kasína gefur 5 stig
- Að hreinsa borðið á meðan spilað er (“svippur“) gefur 1 stig
- Sá sem átti síðasta slaginn hirðir restina af spilunum úr borðinu og fær þar að auki 1 stig.
- Fleiri spaðar í loks pils gefa 1 stig (spaðarnir)
- Fleiri ásar í lok spils gefa 1 stig (ásarnir)
- Fleiri spil í bunkanum í lok spils gefa 1 stig (bunkinn)
Það er best að reyna að ná sem flestum spilum, spöðum og ásum í bunkann. Ef bunkarnir eru jafnstórir fær hvorugur stig. Sama gildir ef hvor spilari er með tvo ása.
Sigurvegari
Sá vinnur sem fyrr fær 21 stig. Áður en vinningstölunni er náð eru allar líkur á að spilastokkurinn klárist einu sinni eða oftar.