Kona sem tekur þvottahús á í erfiðum samskiptum við dóttur sína og lendir í vandræðum með skattinn. Í myndinni lærir hún að nota frumlegar leiðir til þess að leysa úr sínum málum.
Þegar ég reyndi fyrst að horfa á myndina féll ég bara alls ekki fyrir henni. Ég stoppaði eftir fyrsta hálftímann eða svo. Í þetta skipti kláraði ég. Það tekur myndina töluverðan tíma að komast á gott skrið. Það er líklega þörf á því til að leggja grunninn. Hún náði mér eiginlega ekki almennilega fyrr en í lokin.
Frábærir leikarar.
Mig langar að sjá Crouching Tiger, Hidden Dragon aftur, eða ætti ég að byrja á Swiss Army Man?