Eldri kona í London leigir út herbergi til skálks sem reynir að gera heimili hennar að skjóli fyrir glæpamenn.
Ealing Studios var frægt fyrir gamanmyndir og þessi er ein sú þekktasta af þeim. Fyrir tuttugu árum endurgerðu Coen-bræður The Ladykillers og það er, að mínu hógværa mati (IMHO), lélegasta mynd þeirra. Fæstir voru hrifnir og margir töldu þá hafa eyðilagt þessa klassísku mynd.
Gervitennurnar hans Alec Guiness er svo asnalegar á ófyndinn hátt að ég komst bókstaflega ekki yfir það. Ég fílaði þessa alls ekki. Ég hló einstaka sinnum en ekki innilega.
Það er vissulega gaman að sjá Peter Sellers sem Teddy Boy, sérstaklega af því Herbert Lom (úr Pink Panther myndunum) er líka meðlimur í glæpahópnum, en það bjargar myndinni ekki.
Leikstjórinn Alexander Mackendrick gerði líka myndina Sweet Smell of Success (1957) sem er töluvert betri.
Maltin gefur ★★★½ sem þýðir væntanlega að hann hefur fallið fyrir tönnunum.