Kick-Ass 2 (2013)🫴

Blautbúningshetjan okkar eignast nýja búningaklædda vini.

Það er erfitt að afbyggja ofurhetjur í framhaldsmynd. Og það tekst ekki hér. Meira af því sama. Meira af harmleikjum. Fleiri hetjur. Fleiri óvini.

Við fáum Jim Carrey en ekki í skemmtilega gírnum. Við fáum Donald Faison (Clueless, Scrubs) en hann fær ekki mikið að gera. John Leguizamo nær næstum flugi.

Vandinn er að Hit-Girl er aðalpersóna fyrri myndarinnar og persóna Kick-Ass virkar fyrst og fremst í samspili við hana. Þegar hann er einn með nýju vinum sínum er þetta ekki sérstaklega áhugavert.

Maltin gefur ★½ sem er í lægri kantinum en hann var ekki hrifinn af hinni heldur.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *