Sólarhringur í lífi ungs fólks í L.A. við lok tíunda áratugar tuttugustu aldar (2000 er lokaár áratugarins og aldarinnar því þannig virka tölurnar).
Sumir leikara GO voru á toppnum um þetta leyti. Katie Holmes, Breckin Meyer, Taye Digg og Jay Mohr. Jane Krakowski og Timothy Olyphant urðu frægari þegar á leið. Melissa McCarthy er í örlitlu hlutverki. Sarah Polley er eiginlega betur þekkt sem leikstjóri í dag (t.d. Away From Her).
Ég missti alveg af þessari mynd á sínum tíma en hef heyrt talað um hana. Hún er mjög síns tíma. Ekki það að ég hafi mikla innsýn í reynsluheim þessa fólks. Það kemur ykkur væntanlega rosalega á óvart að ég missti alveg af reifi og e-töflum.
Maltin gefur ★★ og líkir henni við Pulp Fiction í neikvæðum tón. Það er ekki fráleitt hjá honum. Ég var ekki alveg að fatta tóninn í myndinni en það lagaðist að mestu þegar á leið. Mig grunar að ég hefði meira gaman af því að sjá myndina í annað sinn.