Who Framed Roger Rabbit (1988) ★★★⯪☆👍

Hver skellti skuldinni á Kalla kanínu og hver ákvað að þýða Roger með sama nafni og notað hefur verið fyrir Bugs Bunny, sem kemur einmitt fyrir í myndinni, í mörg ár?

Tæknilega séð er Who Framed Roger Rabbit. Auðvitað er hún takmörkuð af tækni síns tíma en samt sem áður afrek. Í atriðinu þegar Daffy og Andrés há píanóeinvígi er sést andlit speglast á glansandi svörtu yfirborði. Dásamlegt.

Robert Zemeckis leikstýrir. Bob Hoskins er frábær og Charles Fleischer líka. Kathleen Turner (tal) og Amy Irving (söngur) eru saman fullkomnar sem Jessica Rabbit.¹² Christopher Lloyd er illmennið.

Það eru partar af Who Framed Roger Rabbit sem virðast vísa í aðskilnaðarstefnuna í Bandaríkjunum. Það má skilja teiknimyndapersónurnar sem ígildi svarts fólks. Augljósa dæmið er klúbburinn þar sem Jessica Rabbit syngur. Hann virðist vera byggður á skemmtistöðum eins og Cotton Club þar sem svartir skemmtikraftar komu fram á sviði en allir gestirnir voru hvítir. Í myndinni eru gestirnir mannverur sem er skemmt af teiknimyndapersónum. Allegorían er hálfbökuð og verður mjög vandræðaleg ef reynt er að kafa dýpra.

Who Framed Roger Rabbit er mynd með mörgum skemmtilegum atriðum. Sérstaklega er gaman að sjá þessar klassísku persónur frá Disney og Looney Tunes saman á skjánum. Síðan koma daufir kaflar á milli. Hún er ekki góð sem heild.

Maltin gefur ★★★⯪ enda gríðarlegur aðdáandi gamalla teiknimynda.

Óli gefur ★★★⯪☆👍

¹ Jessica Rabbit hefur aldrei heillað mig útlitslega séð.

² Á þessum tíma var Amy Irving gift framleiðanda myndarinnar, Steven Spielberg.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *