Bjólfskviða

Ég fór í bíó áðan með Kristynu á Beowulf. Myndin var að mestu góð. Það fór samt mjög illa í mig að sjá fjalllendi Danmerkur. Mér þótti líka slæmt að heyra minnst á Ísland í mynd sem á að gerast árið 507.  Flest annað var vel gert og ég get alveg mælt með henni. Hún er nærri tveir tímar og þeir flugu hjá.

Ármann verður líka glaður að heyra að drekinn fær að fljóta með.