Ben-Hur (1959) ★★⯪☆☆🫴

Bláeygður og fölur gyðingaprins í Palestínu lendir upp á kant við Rómverskan vin sinn. Síðan er Jesús á svæðinu.

Byrjum á bíóreynslunni.

Ben-Hur var sýnd í Sambíóunum í Kringlunni. Fyrirfram var ég frekar efins um að bíóið væri meðvitað um innbyggða hléið í myndinni. Slíku er mjög gjarnan klúðrað í íslenskum bíóhúsum.

Vesenið byrjaði samt strax í upphafi sýningar því Ben-Hur er ein af þessum myndum hefst á forleik. Bara tónlist og svart tjald. Bíógestir voru greinilega margir ringlaðir á þessu og ég sá nokkra fara út úr salnum, sumir allavega til að kvarta.

Á nær fullkomnum komískum tímapunkti tók einhver sig til og stoppaði myndina nákvæmlega þegar MGM-lógóið birtist á tjaldinu. Síðan hefur sá sami væntanlega reynt að finna réttan stað með því að hoppa fram og aftur í myndinni. Það endaði aftur í forleiknum þannig að við fengum aukaskammt af tónlist áður en myndin byrjaði aftur.

Þegar kom að innbyggða hléinu ákvað ég að vera snöggur til að kaupa popp því mig grunaði sterklega að myndin færi bara aftur af stað eftir tiltölulega stuttan tíma. Innbyggðu hléin voru ekki jafn vegleg og þau sem við erum vön á Íslandi. Það passaði og salurinn var hálfyfirgefinn þegar myndin byrjaði aftur. Ég var smá hræddur um að það kæmi aukahlé en lukkulega fékk myndin bara að klárast.

Ég er svolítið á því að bíóin ættu að hafa fólk í vinnu sem veit eitthvað um kvikmyndir.


Fyrir löngu sá ég Ben-Hur (1925) en ég hafði aldrei séð þessa Ben-Húr áður.

Charlton Heston leikur prinsinn Húrsson. Það er óttalega kjánalegt. Hann hefði getað leikið sannfærandi Rómverja. Kannski. Hann var auðvitað fæddur til að leika starfsmann á bensínstöð.

Það eru mörg flott atriði í Ben-Hur. Það er bara frekar langt á milli þeirra. Kappaksturinn er góður og galleiðuatriðin sömuleiðis.

Reyndar var ég svolítið ringlaður á því hvernig trommur voru notaðar þarna í galleiðunum. Þrælarnir toguðu á fyrsta slætti af fjórum og fóru til baka á þeim þriðja. Kannski hljómaði þetta ekki nógu vel með hægari takti.

Ég ætlaði að lesa mér til um hvernig trommur voru notaðar í rómverskum galleiðum en komst að því að þær voru líklega ekki notaðar yfirhöfuð. Þar að auki virðast Rómverjar ekki hafa notað galleiðuþræla sem er svolítið mikilvægt atriði í Ben-Hur.

Þegar kom til Rómar var margt undarlegt. Ég var sér í lagi hissa á að sjá keisarann Tíberíus í borginni því mig minnti endilega, og réttilega, að hann hafi verið í Kaprí á þessum tímapunkti.¹

Arabíski kaupmaðurinn sem leikur lykilhlutverk í Ben-Hur virðist nota sömu búninga og við sjáum í Lawrence of Arabia og Spartacus. Eitthvað grunar mig að föt hafi þróast töluvert á nær tveimur árþúsundum. Síðan er ég nokkuð viss um að „Arabar“ hafi verið töluvert öðruvísi þjóðernishópur en sýnt er í myndinni.

Það er merkilegt hve fáir minnast Jesúhluta Ben-Hur. Það er frekar plássfrekur kafli. Það er allt voðalega fyrirsjáanlegt. Það var samt gott að hafa T-laga kross þarna. Ég er samt frekar viss um að timbrið hafi ekki litið út eins og það hafi komið úr sögunarmyllu.

Þó ég sé sáttur við að hafa fengið tækifæri til að sjá Ben-Hur í bíó er það er meira kvikmyndasögulega séð áhugavert heldur en reynslunnar vegna. Myndin er ekki allslæm en ég sé ekki fyrir mér að horfa á hana aftur.

Maltin gefur ★★★⯪.

Óli gefur ★★⯪☆☆🫴.

¹ Af því ég man svo vel eftir Tíberíusi í þáttunum I, Claudius.