You Can See Everything (2026) ★★★★☆👍

Það er ekki hægt að skrifa um You Can See Everything án þess að höskulda töluvert þannig að ef þið viljið ekki vita óhóflega mikið er kannski nóg að mér fannst þetta góð en gölluð mynd. Síðan koma höskuldar. Sá stærsti er mjög neðarlega.

Hvernig er hægt að höskulda heimildarmynd? Ég þekkti sögu Elizabeth Holmes og Theranos ágætlega. Hún er að mörgu leyti týpísk fyri Kísildal. Frumkvöðull blekkti ótal fjárfesta og framámenn. Að því leyti er mér að miklu leyti sama um glæpi hennar. Það er eiginlega frábært að henni hafi tekist að plata Henry Kissinger. Það er auðvitað önnur hlið. Það er rangt að vekja falsvonir í læknavísindum og líklega sogaði hún upp fjármagn sem var ætlað raunverulegri heilbrigðistækni.

Ástæðan fyrir því að það er hægt að höskulda You Can See Everything er að hún er ekki heimildarmynd um Elizabeth Holmes og Theranos. Hún er nær því að vera einhvers konar gjörningur. Hún er afbygging á heimildarmyndaforminu og hugleiðing um samspil sannleika og skáldskapar.

Við vitum að heimildarmyndir blekkja. Það hefur verið raunin allavega frá árinu 1922 þegar Nanook of the North kom út. Heimildarmyndir velja og hafna. Þær reyna gjarnan að sannfæra áhorfandann um að þetta sé ekki raunin. Að á skjánum sé að finna sannleikann. Á sinn hátt geta þær verið eins og Elizabeth Holmes sjálf var þegar hún var að spinna blekkingarvef sinn.

You Can See Everything gat aldrei orðið vönduð heimildarmynd. Um leið og Billy Evans, kærasti Holmes, samdi um greiðslur frá A24 þá var sá möguleiki úr sögunni. Það er líka ljóst að þetta var fullkomlega ósiðleg ákvörðun og við ættum að gagnrýna framleiðslufyrirtækið fyrir að samþykkja þá skilmála þrátt fyrir það hvernig málið þróaðist.

Ég vona að leikstjórinn Nathan Fielder og framleiðandinn Lance Oppenheim hafi tekið ákvörðun um að nálgast verkefnið á annan hátt þegar ljóst var að siðlegur grunnur heimildarmyndarinnar var hruninn.

You Can See Everything er oft skemmtileg og það eru áhugaverðar pælingar og punktar. Hún er samt of löng. Mér leið svolítið eins og ég væri að horfa á eina af þessum glæpaheimildarmyndaþáttaröðum sem voru vinsælastar fyrir nokkrum árum. Þar sem allt er teygt og togað til þess að hægt væri að búa til fleiri þætti. Mér finnst líklegt að markmiðið hafi einmitt verið að hafa þann valmöguleika að selja hana til streymisveitu eða sjónvarpsstöðva á því formi. Þetta virkar á sinn hátt en ég held að þetta hafi verið óþarfi.

Eitt sem ég tók eftir sem er ekki útskýrt í myndinni er að þegar Fielder er að reyna að fá Holmes til að hringja í sig úr fangelsinu tekur hann skýrt fram að hann sé staddur í New York. Það skiptir töluverðu máli að hann er staddur þar og tekur það fram á upptöku. Síðast þegar ég vissi voru lögin í New York-ríki svolítið sérstök hvað varðar upptökur á samtölum. Það þarf bara samþykki annars aðilans og það þarf ekki upplýsa um upptökuna. Ég veit þetta af því að fjölmiðlafólk eru gjarnt á að nýta sér þessa klausu til þess að komast hjá takmörkunum sem eru til staðar víðast hvar í Bandaríkjunum.

Stærsti höskuldurinn er líklega hve áberandi leikkonan Amanda Seyfried er í myndinni. Hún lék Holmes, eða útgáfu af henni, í þáttunum Dropout. Hún tekur líka þátt í að endurskapa samskipti Fielder og Holmes sem ekki var hægt að taka upp. Það leiðir til eins hápunkts myndarinnar sem gjörnings. Seyfried leikur hlutverk Holmes þar sem hin síðarnefnda segist búin að fá nóg af því að aðrir séu alltaf að tala fyrir hana. Það er marglega brúnkaka.

Það sem ég á erfiðast með að samþykkja við You Can See Everything er hvernig börn Elizabeth Holmes voru notuð. Myndin sýnir einkalíf þeirra, andlit og náin samskipti. Augljóslega samþykktu foreldrarnir þetta allt en myndin sýnir líka að þeim tveimur er ekki treystandi til að taka slíkar ákvarðanir fyrir hönd barna sinna. Kvikmyndagerðarfólk þarf að taka ábyrgð líka.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *