Núna í hádeginu þá beið lið félagsvísindadeildar ósigur gegn liði raunvísindadeildar í Kollgátunni, það var sko naumt, bráðabani og læti. Þetta var agalega gaman, ég er sannfærður um að ef við hefðum haft eina æfingu þá hefðum við getað náð svona 5-8 stigum í viðbót auðveldlega og þar með unnið þetta, ég var aðeins of bráður stundum en þeir félagar kannski ekki nógu æstir. En ég veit svo sem ekki hvort andstæðingar okkar hafi nokkuð æft heldur.
Liðið var semsagt sett saman í gærkvöldi, það gekk erfiðlega að manna það og á endanum þá fékk ég Kalla Vantrúarsegg og sálfræðinema með mér í liðið og stjórnmálafræðin reddaði Hilmari sem ég þekki ekki neitt. Annars þá hafði ég ekki hitt Kalla áður, bara spjallað við hann á netinu. Fyrirutan að hitta Kalla þá hitti ég einnig Lalla Vantrúarmann sem hefur umsjón með keppninni.
Gríðarlegt fjör alveg, svona kemur adrenalíninu mínu af stað, hápunkturinn fyrir mig var þegar áhorfendur klöppuðu fyrir svarinu „hlaupársdagur“.
