Kollgátan aftur

Kalli bloggar um Kollgátuna. Hann minnist á að læknarnir rústuðu hagfræðingunum og segist ánægður með að hafa ekki lent á móti þeim. Ég er ekkert viss um að læknarnir hafi verið erfiðir, mér þykir líklegra að hagfræðingarnir hafi verið svona lélegir. Læknarnir njóta hins vegar vafalaust þess að spurt er um barbapabba í inntökuprófunum. Kalli hefur hins vegar rétt fyrir sér að við klúðruðum anarkismanum vel og vandlega.

Það verður áhugaverð keppni, ég styð raunvísindadeild svo að ósigur okkar gegn þeim verði hálfgert annað sætið. Ég efast um að nokkur keppni verði jafn spennandi og keppnin okkar í gær.