Heimspekileg forspjallsvísindi

Ég fór í Heimspekileg forspjallsvísindi áðan, veit ekki alveg hvað mér finnst, vissulega verður eitthvað skemmtilegt þarna. Þetta námskeið er fyrir Guðfræðideild og Heimspekideild. Guðfræðideildin tekur þetta þó ekki í heild sinni því þeir sleppa ritgerðinni sem á að fylgja í pakkanum. Ég kem þangað inn á þeirri forsendu að það sé gott fyrir bókasafns- og upplýsingafræðinga að þekkja þessar pælingar.

Ég var að fletta yfir nemendalistann í kúrsinum og tók þá eftir því að það eru bara 5 (ef ég taldi rétt) úr guðfræðinni, úr bókasafns- og upplýsingafræði koma allavega þrír. Ég átta mig ekki alveg á hvað réttlætir að þetta námskeið sé á einhvern hátt með á áherslu á guðfræðina en ég vona innilega að ég fái tækifæri til að rífast við guðfræðinemana í umræðutímunum.

Annars þá er ótrúlegt að sjá muninn á nemendum þarna og í félagsvísindadeild. Venjulega þegar við erum í háskólabíó þá er svona þriðji hver maður með fartölvu en þarna voru bara örfáar hræður á upplýsingaöld.