Ammæli

Jæja, ég á afmæli. Reyndar átti Arndís afmæli í gær. Þið sem ekki vissuð það þá er hún í fyrsta sæti Háskólalistans. Ég gaf þessum unga jafnaðarmanni Kommúnistaávarpið í tilefni dagsins, sjáum hvað hún fær útúr því.

Með afmælisgjafir þá vill ég segja að þið eigið endilega að kjósa okkur, þið og allir vinir ykkar.

Annars megið þið gefa mér hitt og þetta, skemmtilegar dvd myndir og hvaðeina. Eitthvað gott í skóinn. Eygló gaf mér Live Aid og ég var að horfa á Queenhlutann, Freddie var flottastur.

Afmælisdagurinn fer annars í hitt og þetta. Ég byrja á stofugang og fer síðan á fund og fund. Síðan ætla ég að slappa af, reyna að eyða sem minnstum tíma heima hjá Ella.

7 thoughts on “Ammæli”

Lokað er á athugasemdir.