Dáin

Grísla
Fæddist í júní 1999 og dó 18. maí 2005
Við ákváðum að láta hana heita Zero eða Síró eftir laginu með Smashing Pumpkins en í raun var hún aldrei kölluð annað en Grísla. Við fengum hana þegar hún var örlítill hnoðri þegar við vorum nýbyrjuð saman. Þegar Grísla fæddist þá leit hún út fyrir að vera blind á öðru auga en það lagaðist. Mig minnir að við höfum fyrst séð hana 17. júní um það bil. Ég komst reyndar fljótt að því að ég er með ofnæmi fyrir naggrísum og gat því varla handleikið hana. Fyrir nærri tveimur árum fékk hún sýkingu í fæturnar og þurfti að fara á sýklalyf. Hún náði sér eiginlega aldrei af því. Síðan hefur fleira komið upp á undanfarið. Í fyrra fórum við með hana til dýralæknis sem hafði aldrei heyrt um jafn gamlan naggrís. En greyjið litla dó í kvöld, ég á eftir að sakna hennar. Hún var nærri sex ára.