Mér þykir merkilegt að sumt fólk haldi að álverksmiðjur út um allt land sé góð hugmynd. Það er alveg ljóst að ef álverð hrynur einhvern tímann á næstu árum þá mun það hafa alvarlegar afleiðingar á efnahagslífið en samt vill fólk bætta við fleiri svona verksmiðjum. Það er ákaflega slæmt að treysta á svona einhæfan iðnað. Þetta er algerlega aðskilið frá umhverfisverndarsjónarmiðum.
2 thoughts on “Álheimska”
Lokað er á athugasemdir.

Þetta er nú samt spurning um það hvort það megi ekki kalla það líka einhæft að byggja allt á fiski og ferðamennsku. Ég held að nægilega fáir hafi lifibrauð sitt af álframleiðslu eins og er, til að hægt sé að halda því fram að fleiri verksmiðjur AUKI fjölbreytni, frekar en að draga úr henni.
Álverksmiðjur eru ekki eingruð fyrirbæri sem hafa einungis áhrif á þá sem þar vinna, þær hafa til dæmis gríðarleg áhrif á Landsvirkjun sem að sama skapi hefur áhrif á okkur öll. Síðan er þetta spurning um útflutning og slíkt sem hagfræðingar eru færari að útskýra en ég. Álverð er mjög sveiflukennt.
Það er að sjálfssögðu líka slæmt að einblína á fisk og því er ákaflega gott að vægi fiskveiða fer minnkandi. Hins vegar er það þannig að fiskveiðar og fiskvinnsla er í eðli sínu ákaflega fjölbreyttur atvinnuvegur, þó verð á karfa lækki þá gæti verð á loðnu hækkað, einn fiskur fer úr tísku en annar í tísku og svo framvegis. Ef álverð lækkar þá hefur það áhrif á allar álverkssmiðjur.
Ferðaþjónusta er líka svona fjölbreytt, það eru ótal hópar sem þú getur höfðað til.
En það er til fleira en fiskur, ferðamenn og ál.