Kommúnupartí

Ég fór í grillveislu í gær með Kommúnufélögum. Mjög gaman og góður matur. Við spiluðum Trivial þar sem ég, Freyr, Auður og Elli unnum Eygló, Lalla, Sverri og Jakob tvisvar í röð. Í seinna skiptið fór liðið mitt reyndar að snúa sér að einhverri vitleysu í stað þess að hugsa um spilið þannig að hinir náðu forskoti. Við náðum þeim samt og unnum þó við þyrftum að svara tveimur lokaspurningum í íþróttaflokknum vegna einhverra svindlásakanna. Sverrir og Kobbi fóru á meiriháttar bömmer eftir tapið, það var meiriháttar fyndið. Skvass? Lacrosse? Annars er Elli óendanlega leiðinlegur sem andstæðingur í svona spilum, feginn að hann var með mér í liði núna þannig að við gátum sameinast um að vera leiðinlegir við hina.

Elli var annars almennt sofandi eftir að spilamennsku lauk. Það var rætt um margt, þar á meðal traktorssamræður sem hljómuðu einsog fólk væri bara að bulla en það gæti verið vegna þess að ég veit ekkert um þessar vélar. Síðan er Sverrir loksins kominn í hljómsveit með systur sinni.

Að lokum leystist þetta upp í vitleysu þar sem ég var farin að hvetja Eygló til að berja Sverri og fólk var almennt að veðja að hún myndi hafa betur í slagsmálunum.