Við fórum og skrifuðum undir kaupsamning áðan. Miklum peningum eytt í einu lagi þar. Við erum að kaupa íbúðina á 14.2 milljónir, fengum verðið lækkað um hálfa milljón.
Gott að þetta sé komið í gegn, núna getum við farið að ákveða framhaldið almennilega.

Maður er allavega komin í góða æfingu að gefa eiginhandaráritanir. Þurftum að skrifa nöfnin okkar 29 sinnum!
Nú, þetta er svona svipað og á pósthúsinu í Prag.