Ég er kominn niðrí 14 tölvupósta í innhólfinu mínu. Þetta eru póstar sem eru að einhverju leyti óafgreiddir. Ég er mjög hamingjusamur með þetta. Venjulega eru þeir mikið fleiri. Ég er að nota daginn í að skipuleggja mig og allt sem ég er að vesenast í.
Á eftir verð ég samt að drífa í að klára þjóðsagnafræðiverkefnið en á morgun verð ég að klára fyrirlestur sem ég verð með á fimmtudaginn. Áðan prentaði ég líka út dagskránna mína fyrir það sem eftir lifir annar til þess að Eygló viti hvenær ég er bissí.
Er Aðalheiður enn að kenna þjóðsagnafræðina?
Jú, hún er mjög áhugasöm og hin vænsta manneskja.
Jamm… er það ekki gott?