Spurningalisti

Siggi sendi mér spurningalista og þar sem ég er ekki mikið fyrir að senda svona hluti áfram í tölvupósti þá svara ég bara hér. Ég þýddi listann.


Spurningalisti
1. Hvenær vaknarðu á morgnanna?
Þessa daganna er það klukkan sjö en yfirleitt má giska á að það sé allavega klukkutíma áður en ég á að vera mættur eitthvað.

2. Ef þú gætir borðar hádegisverð með einni frægri manneskju, hver væri það?
Miðað við lifandi fólk, Roger Taylor – nei, Brian May – nei, Roger eða Brian? Veit ekki!
3. Gull eða Silfur?
Silfur er mun svalara sem skartgripur en ef þú ert bara að gefa köggla af stöffinu þá myndi ég velja gull.

4. Hver var síðasta mynd sem þú sást í bíó?
Sjöunda Innsiglið. Annars hættur að fara í bíó, fokkings okrarar.

5. Eftirlætis sjónvarpsþáttur?
Simpsons, Friends eða That 70s Show. Miðað við þætti í núinu.

6. Hvað færðu þér í morgunverð?
Kakó og ristað brauð með smjöri og osti.

8. Geturðu snert nefið þitt með tungunni?
Nei, hef reynt mikið.

9. Hvað veitir þér innblástur?
Rithöfundar, tónlistarmenn og grínistar, verk þeirra semsagt. Áhugavert fólk úr daglega lífinu.

10. Hvað er miðnafnið þitt
Gneisti, valdi það sjálfur
11. Strönd, borg eða sveit?
Borg, hiklaust held ég, einsog er.

12. Sumar eða vetur?
Vor og haust
13. Uppáhaldsís?
Þegar ég fæ mér ís þá er það lítill ís með súkkulaðidýfu og rice crispies, frá Kjörís
14. Hvernig finnst þér best að hafa poppið þitt?
Vægt saltað, svoltið smjörbragð og í smáum skömmtum, yfirleitt.

15. Uppáhaldslitur?
Svartur og gulur
16. Uppáhaldsbíll?
Ég er ekki bílamaður en ef ég mætti velja hvaða bíl sem er þá myndi ég velja DeLorean (einsog í Back to the Future).

17. Samlokuálegg?
Ostur og hakk
18. Hvert fórstu síðast í frí?
Frí? Vopnafjarðar um síðustu jól? Langt síðan ég hef fengið alvöru frí. Fór til Borgarfjarðar í júní yfir helgi.

19. Hvaða eiginleika fyrirlýturðu?
Óeinlægni
20. Uppáhaldsblóm?
Sóleyjar
21. Ef þú myndir vinna í happadrætti, hve lengi myndirðu bíða með að segja fólki frá því?
Hugsanlega er ég svo glataður að ég myndi skrifa um það í dagbókina mína samstundis, annars myndi ég ekki segja neinum frá því nokkurn tíman. Ef einhver myndi spyrja mig hvernig ég hefði efni á öllu flotta dótinu sem ég væri að kaupa mér þá myndi ég segja að ég væri að selja dóp.

22. Kolsýrt eða venjulegt vatn?
Venjulegt, annars er ég ekki hrifinn af vatni. Vissuð þið að þvagleki er umtalsverður heilsuvandi hjá sænskum konum vegna þess að þær drekka of mikið vatn?
23. Hvernig er baðherbergið þitt á litinn?
Hvítir veggir og loft en brúnt gólf.

24. Hve margir lyklar eru á lyklakippunni þinni?
Bíll, íbúð, þvottahús, hjól, póstkassi og vinna.

25. Hvar myndirðu setjast í helgan stein?
Einhvers staðar þar sem ég get lesið bækur, horft á myndir/þætti og hlustað á tónlist. Helst nálægt Eygló sem mun hafa það hlutverk að sjá um gamla manninn.

26. Geturðu haldið mörgum boltum á lofti?
Ég geri sífellt heiðarlegar tilraunir til þess.

27. Eftirlætis vikudagur?
Laugardagur ef ég er ekki að vinna.

28. Rauðvín eða hvítvín?
Kók, Appelsín eða kakó.

29. Hvað gerðirðu á síðasta afmælisdaginn þinn?
Fór í Góða Hirðinn og keypti mér plötur, fór síðan um kvöldið á American Style.

30. Ertu skráður líffæragjafi?
Nei.