Firestarter (1984) ★★⯪☆☆🫴

Ung stúlka með blásið hár hefur hæfileika kalla fram oxun í útvermnu efnahvarfi.

Titlaþýðingar á íslensku eru misgóðar. Eldvakinn er einn af þeim betri, töluvert betri en bókin sjálf. Sagan er undir miklum áhrifum frá MKUltra verkefninu þar sem CIA gerði tilraunir með LSD án þess að upplýsa „þátttakendur“ um hvað væri í gangi. Hjá Stephen King er það The Shop (Smiðjan, önnur góð þýðing) sem stendur fyrir þessum rannsóknum.

Firestarter kemur úr smiðju ítalska framleiðandans Dino De Laurentiis sem framleiddi töluvert af myndum byggðar á verkum Stephen King. Upprunalega átti John Carpenter að leikstýra en honum var augljóslega ekki treystandi til þess vegna það að The Thing floppaði. Í staðinn var Mark L. Lester fenginn í verkið.

Drew Barrymore leikur titilpersónuna. Pabbi hennar er leikinn af David Keith.¹ Hann er frekar ósannfærandi. Heather Locklear er mamman. Martin Sheen er Smiðjustjórinn. Art Carney og Louise Fletcher eru góðleg hjón.

Persóna George C. Scott er vandræðaleg. Hann heitir John Rainbird og á að vera af einhverjum óljósum frumbyggjaættum. Ég tók varla eftir því að vísað væri beint í bakgrunn hans í myndinni sjálfri, bara bókinni. Sumir telja að húð hans hafi verið dekkt með farða í myndinni en ég er ekki viss. Það er undarlegt að í myndinni á Regnfuglinn, eins og í bókinni, að hafa barist í Víetnamsstríðinu … sem er erfitt að gleypa aldurslega séð.

Hvers vegna var George C. Scott valinn í þetta hlutverk? Af því að Dino vildi gera myndina virðulegri með stórstjörnu.

Firestarter kveikir enga elda. Þetta er einhver óáhugaverðasta leiðin til að segja þessa sögu. Hún er ekki skelfilega léleg en langt frá því að vera góð. Hún hefur samt haft töluverð áhrif sem sjást aðallega í Stranger Things.

Maltin gefur ★★☆☆ og hrósar myndinni fyrir að skapa vinnu fyrir áhættuleikara.

Óli gefur ★★⯪☆☆🫴

¹ Mig grunar að David Harbour kannski grætt á því að líkjast David Keith þegar hann var ráðinn til að leika í Stranger Things.