Cujo (1983) ★★★★☆👍👍

Ungur drengur lendir í ævintýri með ærslafullum Sankti Bernharðshundi og mömmu sinni (sem lék líka mömmuna í E.T.).

Ég las Umsátur fyrir löngu síðan. Ætli ég hafa ekki verið þrettán eða fjórtán ára. Kannski hef ég aldrei lesið hana á ensku. Hún situr samt í mér. Morgunkornið. Lakið. Allt saman.

Mér datt aldrei í hug að horfa á myndina Cujo. Hún var almennt álitin ein af lélegu Stephen King myndunum. Það eru greinilega margir enn á þeirri skoðun.

Mig grunar að Cujo sé töluvert hræðilegri ef þú ert foreldri. Það eru mörg nístandi augnablik í henni.

Hinn sex ára gamli Danny Pintauro, betur þekktur sem Jonathan í Who’s the Boss?¹, er ákaflega sannfærandi sem hrætt barn. Ég er búinn að lesa aðeins of margar neikvæðar athugasemdir um hann í dómum um Cujo.

Dee Wallace er líka góð. Það ætti ekki að koma á óvart. Maðurinn hennar Christopher Stone er viðkunnanlegi smiðurinn. Þau léku líka saman í The Howling. Ed Lauter er í hlutverki ekki besta hundaeiganda í heimi.

Cujo er leikstýrt af Lewis Teague sem einnig gerði Cat’s Eye. Stóra málið er þó líklega kvikmyndatakan sem er í höndum Jan de Bont. Hann nær að gera ákaflega flotta hluti í þessum takmörkuðu aðstæðum.

Förðunin á hundunum sem leika Cujo er kannski veikasti hluti myndarinnar. Það byrjar vel en stundum er eins og hann hafi lent í skemmtilegu óhappi í brúðkaupsveislu.

Maltin gefur ★★★☆.

Óli gefur ★★★★☆👍👍.

¹ Angela var yfirmaðurinn.