Er Dolores Claiborne stórhættulegur morðingi?
Ég las Örlög, ekki frábær titlaþýðing,¹ væntanlega um leið og hún kom út árið 1995. Eða um jólin eftir að ég fékk hana í jólagjöf. King var stöðluð jólagjöf í mörg ár. Þegar ég fletti þessi upp kom það mér á óvart að myndin hafi komið út sama ár og hafði meira að segja komið í bíó á Akureyri í nóvember. Það eru auðvitað töluverðar líkur á að ég hafi verið að eyða öllum peningunum mínum í skólabækur þannig að bíóferðir hafi verið takmarkaðar.
Örlög er ein af bestu bókum Stephen King. Hún er líka erfið. Hryllingurinn er ekki yfirnáttúrulegur. Þó er dansað við hið yfirskilvitlega þegar við sjáum hana kallast á við hina þá óútgefnu Gerald’s Game og þriðju óskrifuðu bókina í þeirri seríu.
Örlög situr í mér. Ég held ég hafi ekki lesið hana lengi þá rifjaðist hún öll upp fyrir mér meðan ég var að horfa. Ég var alltaf mörgum skrefum á undan því sem var að gerast. Ekki á slæman hátt. Bara þannig að ég gat fókusað á heildina í stað þess að vera að einbeita mér að sögunni. Dolores Claiborne er trú anda bókarinnar. Römmunartækinu er breytt sem er örugglega til góðs.
Kathy Bates er stórkostleg í titilhlutverkinu. Judy Parfitt er í minna hlutverki sem vinnuveitandi Dolores en hún neglir það eftirminnilega. Í fortíðinni leikur Ellen Muth² dóttur Dolores og sýnir stjörnuleik í erfiðu hlutverki. David Strathairn getur verið svo elskulegur og indæll en er það ekki hérna. Alls ekki. Hann þarf ekki bara að leika skíthæl heldur þarf hann að leika skíthæl í augum annarar persónu.
Jennifer Jason Leigh er góð en það er erfitt að deila rammanum með Kathy Bates. Christopher Plummer að standa í hárinu á Bates í þeirra senum.
Leikstjóri er Taylor Hackford sem hefur gert margar og misgóðar myndir. Ég veit ekki hvort nokkur jafnast á við þessa. Tony Gilroy hafði ekki gert margt þegar honum bauðst að skrifa handritið að Dolores Claiborne. Í millitíðinni hefur stjarna hans risið og líklega er hann best þekktur fyrir að stýra Star Wars-þáttunum Andor. Myndin er framleitt af Castle Rock, fyrirtæki Rob Reiner.
Það eina sem gerði mig efins um að setja fimm stjörnur á Dolores Claiborne var lokauppgjörið um framtíð titilpersónunnar. Það er annars flokks atriði í fyrsta flokks mynd. Ýmsir hafa gert athugasemd við ýmsar útgáfur af Maine-hreimnum sem heyrast í myndinni en ég er ekki dómbær á það.
Stóra spurningin er hvers vegna Dolores Claiborne er svona sjaldan nefnd þegar búnir eru til listar yfir bestu myndir gerðar eftir sögum Stephen King. Ég ætla að byrja á að útiloka þann möguleika að ég hafi rangt fyrir mér.
Augljósa svarið er að Dolores Claiborne situr í skugga Shawshank Redemption. Sú mynd kom út árið áður og gnæfir nú yfir aðrar myndir gerðar eftir sögum Stephen King. Það gæti líka verið að Kathy Bates komi með bagga með sér sem heitir Misery. Það er myndin sem hún sló í gegn með og kannski hefur það verið túlkað sem einhvers konar endurtekning að leika í annarri King-mynd.
Síðan er möguleikinn að það hafi skaðað Dolores Claiborne hve kvenlæg hún er. Stephen King hefur líka, að marga mati, aldrei skrifað jafn feminíska bók. Það er ekki alltaf vinsælt.
Ég var alveg búinn að gleyma hve góð Dolores Claiborne væri.
Maltin gefur ★★★⯪ og virðist hafa verið minnihlutarödd á sínum tíma.
Óli gefur ★★★★★👍👍🖖
¹ Getum við kennt forsetanum um? Þeim fyrrverandi. Guðni þýddi sumsé eitthvað af King-bókum á sínum tíma.
² Ellen Muth lék seinna í þáttunum Dead Like Me sem gerðir voru af Bryan Fuller (Dust Bunny). Fuller er mikill Stephen King aðdáandi og fastagestur í hlaðvarpinu The Kingcast. Það er ekki ólíklegt að hann hafi munað eftir Muth úr Dolores Claiborne.
