Christine (1983) ★★★⯪☆👍

Rómeó og Júlía … ef Rómeó væri lúði og Júlía væri bíll með hinsegin undirtónum.

John Carpenter fékk ekki að leikstýra Firestarter en endaði í staðinn með að gera Christine. Þetta var ekki mynd sem hann var spenntur að leikstýra en hann var á þeim stað á ferlinum að hann gat ekki annað. Á köflum má sjá stíl hans skína í gegn en mér sýnist að hann hafi aðallega viljað skila af sér verki sem væri nógu gott. Sem tókst alveg.

Keith Gordon í aðalhlutverki sem Arnie Cunningham (væntalega vísun í Happy Days). Hann var mögulega að leika í fyndnari mynd og kannski hefði verið betra ef aðrir hefðu fylgt hans fordæmi.

Harry Dean Stanton í mikilvægu hlutverki. Ég áttaði mig ekkert á því hver Alexandra Paul væri fyrren hún fór að tala. Ég þekkti röddina og þurfti að fletta því upp. Hún lék jómfrúna Connie Swail í Dragnet¹. Það er mynd sem ég var hrifinn af þegar ég átti hana á spólu og hef ótrúlega oft vísað í en hef ekki þorað að kíkja á í seinni tíð. Sæta ljóshærða stelpan var mun kunnuglegra en ég áttaði mig ekki á að það væri Kelly Preston (Twins).

Tæknibrellurnar eru líklega það besta við Christine.

Maltin gefur ★★☆☆

Óli gefur ★★★⯪☆👍

¹ Dan Aykroyd og Tom Hanks rappa.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *