Björn Bjarnason segir að Vantrú hafi valið auglýsingamennsku umfram rökræður á föstudaginn langa. Ég myndi endilega vilja ræða við hann um þann punkt en hann leyfir ekki athugasemdir á blogginu sínu. Þeir sem vilja hins vegar í raun og veru rökræða um lög um helgidagafrið geta gert það á Vantrú, við erum óhrædd við rökræður. Ég er nokkuð viss um að við vorum fyrsta vefritið á Íslandi sem leyfði athugasemdir við greinar.
Ef maður þarf að taka hið augljósa fram þá kom bingóið af stað rökræðum og það var tilgangurinn.