Við erum kjötætuþjóðfélag og höfum verið frá örófi alda. Í einu skiptin sem fólk hefur ekki borðað kjöt er þegar það átti ekki kjöt. Núna er Gudda í bókhaldinu grænmetisæta og sem góðir Íslendingar getum við ekki annað en að neyða hana til að borða kjöt. Þröngva þessu bara ofan í hana. Þetta skaðar hana ekki og er hluti af menningararfi okkar. Annað væri náttúrulega bara umburðarlyndisfasismi og við viljum ekki svoleiðis.
Við erum líka karlaveldisþjóð og höfum verið það frá örófi alda. Núna vilja einhverjar kellingar fá réttindi. Við förum ekki að breyta okkur fyrir svo vitleysinga. Umburðarlyndið má ekki ganga svo langt.
Ef einhver þekkir Þórhildi Elínu Elínardóttur sem skrifar bakþankana í Fréttablaðinu í dag þá má sá hinn sami senda henni þessa færslu mína.
