Ég keypti mér bókina In the Shadow of No Towers eftir Art Spiegelman höfund Maus. Í bókinni fjallar hann um persónulega reynslu sína af 11. september og eftirköstum árásanna en hann bjó í næsta nágrenni við Tvíburaturnana. Áhrifaríkast var þegar hann talaði um hvernig hann missti í samsæriskenningum um árásirnar. Hann áttaði sig loksins á því að í raun skipti engu máli hvað ríkisstjórnin vissi fyrirfram en öllu máli skipti hvernig hún hefði misnotað sér atburðinn til að ráðast að persónufrelsi eigin borgara og hefja stríð.
–
Áðan gerði ég tilraun með eggjaköku sem fólst í því að nota sæta chilisósu út í blönduna. Mjög nammilegt. Annars er ég bara heima í kvöld á meðan Eygló er í saumaklúbb, áður en hún fór henti hún í mig badmintonreglubók sem ég á væntanlega að lesa yfir fyrir morgundaginn.