Nú er veturinn endanlega kominn held ég. Ég var úti í gær með húfu, vettlinga og trefil og í dag þurfti ég að skafa af bílnum mínum áður en ég fór í skólann. Iss. En það er samt fallegt úti þannig að ég gat dáðst að hrauninu á brautinni áðan:)
Ég er að rembast við að skrifa ritgerðir, það gengur satt að segja bara ágætlega þó að það mætti alveg ganga betur… Er það ekki alltaf svoleiðis??
Í morgun var einmitt þriðji dagurinn í röð sem ég þurfti að skafa af bílnum, skjálfandi með vettlinga og húfu og læti… Svo er ofninn í herberginu mínu bilaður þannig að það er alltaf skítkalt og vont loft þegar ég vakna á morgnanna… Líður ögn eins og ég sé fátæklingur í Síberíu eða Rússlandi með bilaða kyndingu. Langar í stóra loðhúfu.
iss.. bíleigendur… iss.. ritgerðir..
sendi hlýja vetrarstrauma