Að vera kúl

Það er sérstök list að vera kúl. Maður verður alltaf að vita hvað er flottast og hvað er glatað. Eitt það mikilvægasta er að geta sagt „whatever“ og látið einsog ekkert sé þó eitthvað gerist.

Ég er ekki kúl, alls ekki, langt frá því. Í dag var heilsíðugrein (ég bjóst bara við einhverri smá klausu) í mest lesna blaði landsins um mig og eitthvað sem ég gerði, mér finnst það merkilegt og hef ekki í mér að láta einsog það sé bara venjulegur atburður. Ef ég hefði ekki örlitla sjálfsstjórn þá myndi ég láta alla sem ég þekki vita af þessu. Ég myndi senda tölvupóst, sms, bögga fólk á MSN (ég gerði það reyndar) og hringja. Ég náði að vísu halda vitneskjunni um væntanlega grein frekar leyndri (þó sumir hafi væntanlega lesið um það hjá Badabing).

Ég hef ekkert kúl, ef ég hefði það þá myndi ég missa það um leið (botcha kúltjékki (roleplay tilvísun, ekki kúl)). Stefáni Pálssyni virðist vera alveg sama þó hann komi fram í fjölmiðlun, líklega bara vanur þessu., Bloggar ekkert um að hann sé að koma í Kastljósið að tala um blogg en nær síðan að ljúga að manni að hann sé að fara að koma í Gísla Martein (kannski að maður hafi ekki alveg fallið fyrir því en samt).

Þegar ljósmyndarinn kom til að taka mynd af mér þá var ég búinn að velja mér föt (hégóminn kemur í ljós) og ég er afskaplega ánægður að það er hægt að sjá nokkuð vel að bolurinn er merktur hljómsveitinni Tý. Ég fékk samt ekki að setja upp myndavélasvipinn minn, var neyddur til að horfa beint í vélina. Amma var ánægð með myndina af mér, hún á samt aldrei eftir að skilja hvers vegna ég verðskuldaði að fá mynd af mér í blaðið (frekar en fjölmargir aðrir) enda tel ég nógu gott af 91 árs gamalli konu að vita að barnabarn hennar skrifi eitthvað á eitthvað sem heitir Internetið (hún hefur meiraðsegja fengið að lesa smá af síðunni).

Gaman að fá fimmtán mínútur af frægð, fannst stundum fólk horfa á mig í dag reynandi að átta sig á hvaðan það kannaðist við mig.

Halló þú

Velkominn á síðuna mína.

Spurningunni þú minnir mig á náungi sem ég þekkti en þú heitir öðru nafni er svarað á síðunni nærmynd en ekki fara að skoða þá síðu neitt nánar ef þú vilt ekki fá að vita of mikið.

Ef þú ert að leita að Vefverðlaunum Gneistans þá smellirðu á þennan hlekk.

Ég vill taka fram að ég er ekki bloggari heldur held ég dagbók á netinu, munurinn er vissulega enginn en ég vill samt taka það fram. Ég hef ekki verið í eitt og hálft ár með dagbók hérna því áður fyrr var hún á öðru svæði, hingað var hún flutt í sumar.

Að lokum vill ég taka fram hve gaman það að er að hafa fengið að vera svona nálægt Helga Hó því hann er sönn hetja.

Ekki hafa áhyggjur ef þú skilur ekki hvert ég er að fara heldur lestu bara eldri færslur frá mér.

Bláar hugsjónir

Heimdellingar eru að kjósa sér stjórn en þó aðallega formann, fylkingarnar sem berjast um áhrif kalla sig blátt.is og hugsjónir.is.

Hugsjónafólkið er með áherslurnar á hreinu, að einkavæða ÁTVR og lækka áfengiskaupaaldurinn eru efst á blaði yfir raunveruleg málefni þeirra, það kemur þar af leiðandi ekki á óvart að Sigurður Kári er einn aðalstuðningsmaður þeirra. Þau fá að vísu plús fyrir að vilja aðskilja Ríki og Kirkju en þau eru vissulega í vitlausum flokki ef þau ætla að hafa þá skoðun, Kristilegi Íhaldsflokkur Íslands fer ekki að aðskilja Ríki og Kirkju.

Bláa fólkið virðist ekki hafa sérstök málefni nema að efla starf Heimdalls og gera félagið skemmtilegt.

Annars þá minnir mig að í fyrra hafi kosningar í stjórn Heimdalls farið þannig fram að Winner Takes All, semsagt að sú fylking sem vann formannskjörið fékk öll sæti í stjórninni. Það verð ég að segja að sé mjög óeðlilegt fyrirkomulag, spurning hvort það verður eins núna eða ekki (eða hvort mig sé jafnvel alveg að misminna).

Össur dagsins

Hér fyrir neðan er að finna Össur dagsins, það er það sem gerist þegar mér er hleypt á netið áður en ég hef afsturlað sjálfan mig aðeins. Afsakið….