1000 færslur

Þetta er færsla númer 1000 á þessari síðu, semsagt frá því að ég kom inn á Kaninkuna í júní í fyrra. Eru allir búnir að vera duglegir að lesa?

Einn um páska

Ég er einn um páskana, Eygló fór til Norðfjarðar með Svenna og Hrönn. Hvers vegna ætli ég hafi ekki farið með? Tíu klukkutímar í bíl hvora leið er ekki heillandi tilhugsun.

Ég hef það á planinu að vera duglegur um páskana, í gær kláruðum við Sunna skráningarverkefnið nærri því alveg og eftir það náði ég að vinna mikið í bókaskránni. Í gærkvöldi skrapp ég síðan til Stefáns og Steinunnar og fékk hjá þeim Dagfara fyrir lyklunarverkefnið mitt. Ég endaði reyndar með að spjalla við þau í þrjá klukkutíma um hitt og þetta, asnalegt að maður kemur sér aldrei í heimsóknir nema ef maður hefur einhverja ástæðu.

Nú þarf ég bara að vera áfram duglegur um páskana… Survivor á morgun.

Law & Order vesen á Skjáeinum

Það var undarlegt að horfa á Law & Order í gær, ég hafði séð byrjunina af þættinum kvöldið áður og ætlaði að sjá restina en af einhverjum ástæðum var byrjað á öðrum þætti. Ég horfði á en eftir auglýsingahlé í miðjum þættinum var byrjað í miðjum þættinum frá kvöldinu áður. Eftir smá tíma var þátturinn stoppaður og látinn aftur stað frá byrjun. Ég horfði því frekar lengi á L&O í gær til þess að sjá svona fimmtán mínútur.