Rétt áðan var að koma einhver lélegasta þýðing sem ég hef séð, þetta var í Diamonds are Forever og frasinn „piece de resistance“ var þýddur sem „þættir úr frönsku andspyrnuhreyfingunni“ eða eitthvað álíka.
Day: 17. október, 2004
Að berja biskup
Karl Sigurbjörnsson biskup er einstaklega laginn við að pirra mig og aðra trúleysingja, það má jafnvel segja að hann sé einn aðalhvatamaðurinn að stofnun Vantrúar. Í dag var biskup að tjá sig þannig að ég neyddist til þess að taka hann fyrir og það er reyndar ekki langt í að á Vantrú birtist önnur grein um biskupinn eftir mig.
Gestadagur
Dagurinn hófst á því að baka fyrir Vantrúlinga sem byrjuðu síðan að hlaðast inn um tvöleytið og fóru um klukkan sex, í millitíðinni töluðum við um Jesú einsog verstu kristlingar. Hálftíma eftir að Vantrúarliðið skreið út þá fóru bókasafnsfræðinördar að hópast að, pöntuðum pizzu, spjölluðum um dauðann og spiluðum, síðasti maður var að fara út þannig að gestir verið aðalatriði dagsins.
Komst annars að því áðan að það er tíu ára útskriftarafmæli úr tíunda bekk hjá mér í vor, ég leit yfir bekkjarlistann og flokkaði fólkið og komst að raun um að ég væri alveg til í að hitta svona þriðjunginn af þessu fólki en margt af hinu liðinu er of leiðinlegt til að ég nenni nokkuð að hitta það aftur, sleppi þessu alveg.
