Voðaleg fjölmiðlastjarna er Hrefna frænka að verða.
Day: 4. nóvember, 2005
Viltu vinna bíómiða?
Takið þá þátt í getraun Einkavinar bílsins:
Það eina sem þú þarft að gera er að svara spurningunni: Hver er vinur einkabílsins? og þú átt möguleika á að vinna miða fyrir tvo á sérstaka forsýningu myndarinnar Lord of War. Svör sendist á eggertpall@eggertpall.is og þurfa svör að berast fyrir kl. 18 laugardaginn 5. nóvember en dregið verður úr réttum svörum.
Rétt svar er semsagt, Eggert Páll Ólason, hann er eini vinur bílsins.
Hvað er í veskinu mínu?
Í veskinu mínu er:
- Rauða kortið, gildir í mánuð í viðbót.
- Ökuskírteini, gefið út í fyrra af því að myndin á hinu var að upplitast.
- Viðskiptaspjald frá bifreiðaverkstæði.
- Afsláttarkort frá Videóheimum, ekki notað í svona ár eða svo.
- Gegnisbókasafnskort
- Bókasafnsskírteini frá Bókhlöðunni
- Félagsskírteini í Bíófélaginu 101, notað tvisvar ef ég man rétt en ég veit ekki hvað varð um félagið.
- Debetkort
- Viðskiptakort frá Bykó, fékk það sent þegar ég keypti íbúðina
- Viðskiptakort frá Húsasmiðjunni, sömuleiðis
- Afsláttarkort frá American Style, slatta notað
- Félagsskírteini í Þjóðbrók
- Mynd af Eygló og mér tekin 1. maí 1999, alveg nýbyrjuð saman
- Upplituð gömul mynd af Eygló
- Svarthvít passamynd af Eygló
- Litpassamynd af Eygló
- Miði frá Miracle tónleikunum
- Ýmsar kvittanir, sérstaklega frá Tollinum
- Bíómiðar af Wallace & Gromit Hvað segir þetta um mig?
