Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Mánudagur, 3. júlí 2006 klukkan 21:04

Ragnarök

Fregnir herma að vinir mínir í Tý séu að leggja lokahönd á plötu sem ber nafnið Ragnarök.  Ég hlakka mikið til.  Það á að verða þann 22. september sem platan kemur út.  Verst að það lítur ekkert út fyrir að þeir komi hingað í bráð.

Mánudagur, 3. júlí 2006 klukkan 17:49

Bannfæring

Sploid á sína spretti:

Excommunication - “exclusion from the communion” - is like having your decoder ring taken away, you don’t get to take part in any more of the church’s magic.

And you get to sleep in on Sundays.

Mánudagur, 3. júlí 2006 klukkan 15:09

Árekstur í stundatöflu

Það er árekstur í stundatöflunni minni næsta haust, Inngangur að almennum trúarbragðafræðum og Rannsóknir í þjóðfræði.  Ég þarf að taka Rannsóknir þannig að trúarbragðafræðin hljóta að víkja.  Bömmer.  Björtu hliðarnar eru að flest annað ætlar að ganga upp, ég hef lausan tíma til að sitja bæði Tolkien og hátíðir.  En ég verð bara með 13 einingar ef þetta verður lokastaðan.

Mánudagur, 3. júlí 2006 klukkan 9:54

Doktor May

Brian May gítarleikari Queen er að tala um að klára doktorsgráðuna sína núna þrjátíu árum eftir að hann ákvað að snúa sér alfarið að tónlistinni.  Greinilega að heiðursdoktorsnafnbótin dugar honum ekki alveg.