Róttækar og róttækur. Tvö té í báðum tilfellum. Jón Sigurðsson fer verulega í taugarnar á mér þegar hann segir þessi orð. Hann ber nefnilega fram þrjú té. Rótt-tækur. Rótt-tækar. Þetta er mjög týpískt fyrir fólk sem er að reyna að gera sér upp norðlenskan hreim. Fréttamenn á RÚV gera þetta líka stundum, þá tvöfalda þeir líka káin. Tvöfaldar Jón Sig káin sín?
Day: 11. maí, 2007
Týndur
The Search for Scotty. Þarna hefði ég verið til í að hafa Moggablogg.
p.s.
X við Vaff. Kíkið á Silju.
Kosningar
Á morgun eru kosningar og ég hef þá von að þið kjósið gegn ríkisstjórninni, semsagt VG eða Samfylkinguna. Ég hvet engan til að kjósa hina ófrjálslyndu Frjálslynda né Íslandshreyfinguna sem ekki kemur manni að. Ég vona náttúrulega fyrst og fremst að þið kjósið VG og reynið þannig að koma henni Auði Lilju vinkonu minni á þing. Hún gæti komist inn sem jöfnunarmaður og þá gilda atkvæði allsstaðar að. Fátt væri betra fyrir landið en að koma henni að.
