Myndir af mótmælunum

Mér sýnist á öllum myndunum sem hafa verið í sjónvarpinu að lögreglan hafi gengið of langt og að það hafi verið þarna mikið af vanvitum sem vildu aðallega æsa lögregluna upp. Löggan vissi ekkert hvað hún var að gera.

Nýr ritstjóri

Ég skil ekki að fólk sé að tala um nýjan ritstjóra á Mogganum eins og það sé frétt (Mogginn verður væntanlega aðeins þægari). Það hefði verið frétt ef einhver annar hefði tekið við. En fréttin er hver fer á 24 stundir. Það er víst mannfræðingur sem var í MA. Það að hún er langskólagengin sem ætti að ergja Jónas. Þetta er spennó.

Og fólk vill láta þá hafa byssur

Ég verð að taka undir með Hauk, það væri skelfilegt ef þetta lið væri vopnað. Nú skal taka fram að mér sýnist þessir bílstjórar hafa komið fram eins og hálfvitar og ég tel að sýnt hafi verið fram á að málstaður þeirra er aumur en ef lögreglan getur ekki brugðist við svona mótmælum án þess að beita ofbeldi þá sjáum við hve skelfilegt væri að láta þetta lið fá öflugri vopn.

Lögreglan hefur sýnt fádæma dómgreindarskort frá upphafi. Geir Jón tók forystu  í þessu þegar hann bauð bílsstjórunum í nefið í fyrstu eða einum af fyrstu mótmælunum. Hvað var málið með það? Réttast hefði verið að byrja á að sekta menn eins og lög gera ráð fyrir. Það eru engan vegin gróf viðbrögð en sýnir að lögreglan tekur þetta alvarlega. Trúður sem kemur með neftóbak gefur til kynna að þetta sé bara sirkus.

Póstlistavesen

Það er áhugavert að fylgjast með vandræðagangi fólks sem virðist ekki átta sig á að það er að senda pósta um matseðil inn á ákaflega stóran póstlista. Kannski að það ætti að láta fólk fara á námskeið áður en það fær að nota tölvupóst.

Raiders

Í kvöld horfðum við Eygló á Raiders of the Lost Ark. Við erum semsé farin að hita upp fyrir nýju Indy myndina.

Ætti ég frekar að blogga um hve heimskulegt mér finnst að tala um að bloggheimar logi af því að Moggabloggarar eru pirraðir? Ég tek fram að ég hef aldrei lokað á neinn bloggara hér á Truflun, ekki einu sinni Framsóknarmanninn.