Mér hefur undanfarið sýnst menn rugla ítrekað saman eiginleikum ákveðinna manna. Til dæmis eru sumir ranglega taldir traustvekjandi. Það er rétt að benda á að það er til alveg fullt af stirðum og leiðinlegum mönnum sem ekki er hægt að treysta. Þessir tveir eiginleikar, stirð- og leiðinlegheit, segja ekkert um fólk nema hið augljósa: Þú myndir ekki nenna að eyða hádeginu í félagsskap þeirra.
Month: október 2008
Ríkisfjármál
Ég er ekki frumlegur þegar ég segi að mér finnst að ríkið ætti ekki að skera niður í framkvæmdum. Ríkið á að forðast að segja upp fólki (ég er raunar ríkisstarfsmaður svo það sé ljóst). Ég er hins vegar sammála frjálshyggjumönnum að það má lækka laun hjá ríkisstarfsmönnum sem hafa meira en til dæmis 400 þúsund á mánuði í laun (ég er vel undir því) og myndi persónulega byrja á prestum sem allir eru yfir þessum mörkum (reyndar ætti ríkiskirkjan náttúrulega að sjá sjálf um að borga þeim en það er annað mál). Ég er ekkert viss um að það sé góð hugmynd að hækka atvinnuleysisbætur núna en það er nauðsynlegt að skoða það. Ég tel það betri leið að aðstoða t.d. barnafólk sérstaklega. Einnig ætti að skoða möguleikann á að lækka vexti á húsnæðislánum og/eða afnema verðtryggingu (eða væri hægt að minnka hana allavega?).
Gráðug fífl
Ég hef reynt að forðast það að tala um Davíð síðan ég nefndi hið augljósa að grunnvandinn er hugmyndafræðin sem hann innleiddi hér. En fréttir af fólki sem leitar aðstoðar varð til þess að ég rifjaði upp með mér svolítið sem ég var að hugsa.
Hvernig getur maður verið slíkt flón að gera ráð fyrir því að fólk sem stendur í röð til að fá mat séu upp til hópa gráðug fífl en að fólk sem kaupi banka séu það ekki?
Færeyskar krónur
Það er langt síðan að ég stakk upp á gríni að við myndum taka upp færeyskar krónur. Árni Johnsen var að gera það sama í dag af fullri alvöru og virtist telja hana góðan kost miðað við Evruna. Nú er spurning hvort að Árni áttar sig á því að færeyska krónan er eiginlega Evra. Hún er nefnilega ekki sjálfstæður gjaldmiðill heldur bara annað nafn á dönsku krónunni. Danska krónan er síðan háð gengi Evrunnar.
Ég velti oft fyrir mér hvernig við náum að enda með svona vitleysinga á þingi.
Vinir í raun
Ég veit ekki hvort að það sé rétt að segja að þjóðir geti verið vinir en ef svo er sjáum við hverjir eru vinir Íslendinga á því hvað gerst hefur undanfarið. Það eru Norðurlandaþjóðirnar. Danir reyndu að vara okkur við lengi en voru kallaðir öfundsjúkir og hvaðeina. Við skuldum þeim þakkir og afsökunarbeiðni. Norðmenn lýsa því óbeðnir yfir að þeir vilji hjálpa okkur. Svíar ætla að leiða björgunarleiðangurinn. Ég er nokkuð viss um að Finnar eru líka eitthvað að hjálpa okkur.
Bestu vinir aðal eru samt hérna miðja vegu milli Skotlands, Íslands og Noregs. Færeyjingar eru, miðað við höfðatölu sem er aðalmælieining Íslendinga á allt, bestu vinir okkar og hafa verið lengi. Ég efast um að við séum nærri jafn góðir við þá og þeir við okkur. Allavega skuldum við þeim þakkir okkar.
Ég hnuplaði þessu af Baggalúti áðan en veit ekki hvort þetta sé upprunið þaðan:

Kjósa?
Ég tel að allar forsendur frá því fyrir síðustu kosningar séu brostnar og þess vegna skrifaði ég undir.
Kennslustund
Ég tók eina kennslustund áðan og það gekk ágætlega. Þetta var í grunninn það sama og ég talaði um á föstudaginn en ég bað þjóðfræðinemana um að spyrja mig bara um leið í stað þess að bíða þar til í lokin þannig að þetta varð í raun allt öðruvísi.
IMF og stýrivaxtahækkun
Er það ekki Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sem er að knýja fram þessa hækkun á stýrivöxtum? Annars er ég aftur gáttaður á að Seðlabankinn segi að hann sé „að hækka stýrivexti um 6 prósentur“ þegar augljóslega er um prósentustig. Hvernig eiga fjölmiðlamenn og Íslendingar almennt að læra þessi hugtök ef Seðlabankinn er í ruglinu?
Vænlegur forseti Bandaríkjanna
Það að væntanlega forsetatíð Obama verði gríðarleg framför miðað við forsetatíð Bush er í raun ekki mikils virði, sérstaklega þegar Paris Hilton er vænlegur kostur við hlið McCain og Bush. Í sama dúr.
Brenndur banki
Mér þykir það alveg ákaflega undarlegt að átelja mótmælendur fyrir að brenna fána Landsbankans af því að það hafi verið lagt svo mikið í markaðssetningu bankans erlendis (ef ég skil hann rétt). Landsbankinn er ónýtt vörumerki og það sést best á að Nýi Landsbankinn er að skipta um nafn. Ég held síðan að þessi bankafánabrenna hafi bara jákvæð áhrif á ímynd Íslendinga erlendis. Þetta skapar ákveðna fjarlægð milli bankanna og borgaranna í hugum útlendinga og það er bara gott.
Fact check
Af hverju eru fjölmiðlar ekki með fólk sem hefur þann eina starfa að athuga hvort að það sem stjórnmálamenn, auðjöfrar og já, fíflið út á götu sem fær að tjá sig, sé að segja satt. Það er oft ákaflega auðvelt. Ef Jón segir að Gunnar hafi sagt x þá spyrðu Jón hvenær og hvar þetta á að hafa verið og athugar síðan hvort það sé satt. Ég held að sannsögli í fjölmiðlum myndi aukast verulega við þetta. Eins og staðan er núna vita allir að það er ekkert mál að ljúga í fjölmiðlum, í versta falli munu einhverjir bloggarar benda á það en hverjum er ekki sama um þá?
Vitleysingar
Ég var að spá í að eyða heilu bloggi í tengla á fólk sem passar við fyrirsögnina hérna en ég ætla allavega að bíða með það. Hvaðan kemur allt þetta fólk?
Heimskir Íslendingar
Um daginn las ég bloggfærslu hjá manni sem taldi að þorskurinn væri að færa sig úr íslenskri lögsögu. Hans lausn var að veiða þá alla áður en það gerðist. Mér þykir skelfilegt að svona fólk sé til.
Tvenn mótmæli
Ég var ringlaður í gær af því að ég áttaði mig ekki á því að boðað hefði verið til tvennra mótmæla. Ég hafði oftar séð talað um kl. 16 þannig að við mættum þá og gengum Tjarnargötuna. Sáum Kolfinnu, Jón Baldvin, Arnþrúði Karlsdóttur og Snorri tala. Og Ómar syngja. Jón Baldvin komst skammlaust frá sínu eins og Arnþrúður og Snorri hafði þetta stutt og laggott. Það var hins vegar óþægilegt að hlusta á Kolfinnu og nær óbærilegt að heyra Ómar syngja. Ég fékk það á tilfinningunni að ég væri á áróðursfundi Íslandshreyfingarinnar endurreistrar sem er ekki gott.
Sem betur fer voru anarkistarnir hressir og kátir þarna, brenndu fána og hrópuðu slagorð um dauða auðvaldsins. Einhver kastaði líka eggjum í ráðherrabústaðinn (og grunlausan ljósmyndara sem var óheppilega staðsettur). Þetta braut aðeins upp stemminguna.
Ef ég hefði áttað mig betur á þessu þá hefði ég mætt klukkan 15 að hlusta á Hörð Torfason og þann hóp frekar.
Annars er rétt að taka fram að ef hópurinn sem var þarna niðurfrá hefði verið að fagna landsliðinu myndi lögreglan tala um 3 þúsund manns en ekki fimm hundruð.
Baggalútur segir það sem segja þarf
Myndskilaboð – Nýdönsk

Biskup er vellauðugur…
…og þá þarf ekki að bera hann saman við einhver sveltandi börn heldur bara Vesturlandabúann. Milljón á mánuði kemur manni langt.
Myndskilaboð – Glitnisfáni brenndur

Rólegur og geri ráð fyrir hinu versta
Ég tók þá ákvörðun í vikunni að búast við hinu versta. Þetta hefur bætt skap mitt heilmikið.
Brauð og leikar
Að sjá til sólar eftir ár
Ég hlakka svo til.
Þegiðu Siggi
Fyrirlesturinn gekk vel. Í erindi Terry, sem Kristín Einars las, var mikið talað um Sigurð Guðmundsson málara. Ég stökk náttúrulega á tækifærið og byrjaði fyrirlesturinn á því að segja skemmtilega sögu af því þegar hann og Jón Árnason voru saman á Dómkirkjuloftinu. Sigurður var þekktur fyrir sinn munnhátt og þegar fínni konur bæjarins vildu fæ bækur hjá Jóni kallaði hann þetta oft til félaga síns.
Henti Facebook vini
Ég á voðalega bágt með mig á Facebook. Ég á erfitt með að hafna þeim sem vilja vera vinir mínir þó ég þekki þá ekkert. Mér finnst erfitt að útiloka fólk. Áðan henti ég þó „vini“ sem var sífellt að senda mér heimskuleg boð. Ég man ekki eftir að hafa hitt þennan „vin“ í raunveruleikanum og engin samskipti við hann haft. Ég samþykkti hann einungis vegna þess að við áttum töluvert af sameiginlegum vinum. En ég fékk nóg. Kannski að ég grisji meir í vinahópnum í framtíðinni.
En ef þið viljið heyra um netsamfélög þar sem raunveruleg vinátta þrífst þá er fyrirlesturinn minn Dauðinn og sýndarveruleikinn í stofu 101 í Odda á eftir. Þetta byrjar klukkan 11 og ég byrja líklega um 11:15-20 (best að mæta bara 11).
Ósammála Tryggva skólameistara
Ég horfði á viðtal Sigmars við Haarde í gær og sá ekkert athugavert nema að Geir náði stundum að koma sér undan að svara spurningum. Ég er því ákaflega ósammála mínum gamla skólameistara sem telur of langt gengið. Við þurfum og eigum að fá svör. Annars virðast sumir halda að Tryggvi sé í Sjálfstæðisflokknum en það er rangt, hann er í Framsóknarflokknum nema eitthvað mikið hafi breyst.
VG og Evrópusambandið
Ég efast um að það sem ég ætla að segja sé líklegt til vinsælda hjá flokksfélögum mínum en ég þarf að segja það.
VG ætti að opna á aðildarviðræður við Evrópusambandið í þeim kosningum sem verða óumflýjanlega í vetur eða vor. Það eru tvær meginástæður fyrir því. Sú fyrri er að það eru of margir sem vilja þessa lausn, meðal annars margir og jafnvel meirihluti, ef ég man rétt, stuðningsfólks VG. Seinni ástæðan er sú að ég er farinn að óttast það að ef Samfylkingin leiðir aðildarviðræður, sem er nær ákaflega líklegt, þá mun samningafólkinu verða of í mun að geðjast sambandinu og við fáum verri díl. Ef VG myndi leiða viðræðurnar, sem hugsanlega stærsti flokkurinn, værum við líklegri til að fá betri samning.
Endanleg ákvörðun um aðild er síðan náttúrulega hjá fólkinu sem byggir þetta land en ekki hjá stjórnmálaflokkum.
