Dauðarefsingar og lýðræði

Ég sá smá bút úr viðtali Boga Ágústssonar við bandaríska hæstaréttardómarann. Þar var minnst á dauðarefsingar. Dómarinn nefndi að í mörgum löndum þar sem þær eru bannaðar þá sé meirihluti fyrir þeim meðal almennings. Mér fannst áhugavert að sjá manninn tala um atriði sem mér finnst mannréttindamál eins og lýðræði væri eitthvað aðalatriði. Málið með mannréttindi er að það skiptir engu máli hvort það sé meirihluti eða minnihluti styðji þau, þau eiga að vera algild.

Skilti

Ég tel ágætar líkur á að ég útbúi skilti fyrir næsta laugardag og er búinn að ákveða hvað á því mun standa. Síðan er bara að vona að lögreglan berji mann ekki.

Skrílslæti fyrir Geir Haarde

Geir nokkur Haarde talar um skrílslæti í Mogganum í dag. Raunar var hann ekki staðnum enda er hann hnetulaus. Hann hefði ekki séð nein skrílslæti um helgina en þetta myndband sýnir hins vegar slíkt. Þarna berjast kristnir munkar á því sem þeir telja helgasta blett í Jerúsalem ef ekki heiminum.

Aldrei hlustað á friðsöm mótmæli

Síðustu ár hafa farið fram ótal friðsöm mótmæli gegn stóriðju, virkjunum, Íraksstríðinu, meðferð á Falun Gong liðum, sambandi ríkis og kirkju, eftirlaunafrumvarpinu og væntanlega fullt af öðrum hlutum sem ég man ekki eftir í augnablikinu. Allt var þetta hunsað. Eftir að þrenn nær fullkomlega friðsöm mótmæli fóru fram sauð örlítið upp úr á þeim fjórðu. Allt mjög vægt og mig grunar að betri lögreglumenn hefðu getað róað alla. Þeir sem halda að Geir Jón sé góður í svona starfi þekkja væntanlega bara ekki til hans.

Mótmælin eiga eftir að stækka og ríkisstjórnin heldur væntanlega að hægt sé að hunsa þau eins og svo mörg mótmæli hafa áður verið hunsuð. Það á ekki eftir að virka. Þó mér finnist sjálfum að Íraksstríðið sérstaklega hafi verið mikið verra mál þá er staðreyndin að fólk bregst verr við þegar það finnur sjálft fyrir óréttlæti. Fólk mun því ekkert gefast upp og fleiri munu bætast í hópinn. Ríkisstjórnin mun ekki geta hunsað þetta til lengdar ogeftir því sem lengri tími líður mun fólk verða reiðara og því mun oftar sjóða uppúr. Bæði Samfylking og Sjálfstæðisflokkur munu þurfa að gjalda fyrir hverja viku sem líður án þess að raunverulega sé hlustað á fólk og því svarað.

Meistarinn dæmdur

Við fórum til Árnýjar og Hjörvars í gær í mat og spil. Spilið sem varð fyrir valinu var Meistarinn sem við Eygló keyptum um daginn á fimmhundruð kall. Spilið var að mörgu leyti nokkuð skemmtilegt. Stærsti gallinn var hins vegar að það var mjög illa prófarkalesið. Bæði spurningar og reglur voru uppfullar af villum. Það þurfti því mjög reglulega að ákveða viðbætur við reglur á staðnum til að gera þær skýrari. En þetta var gaman.