Enn um rasisma Snorra-Eddu

Þetta er mín þriðja færsla um þetta efni og hvet ég alla er ekki hafa lesið hinar færslurnar að gera svo. Sem fyrr var sagt virðist Snorri ekki hafa haft mikla samúð með dvergum:
„Þá stóð Þór að og vígði bálið með Mjöllni, en fyrir fótum hans rann dvergur nokkur, sá er Litur nefndur, en Þór spyrnti fæti sínum á hann og hratt honum í eldinn, og brann hann“. Tilgangslaus morð á minnihlutahópum virðist vera gegnumgangandi þema bókarinnar, en það skal engan undra þó fleiri færslur af sama toga muni prýða þetta blogg.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *