111246983843793794

Hérna er Allahornið sem gleymdist að birta í gær:

Að buffa borgarísjaka:
„Ég hef svona verið að hugsa, sökum atburða liðinna daga, hvers vegna við strákarnir þurfum að brjóta ísinn hjá ykkur stelpunum tvisvar… Mér finnst allt í lagi að við þurfum að brjóta ísinn í fyrra skiptið, en að við þurfum síðan að hringja bláedrú og kjarklausir daginn eftir og játa hrifningu okkar á ný hvað eftir annað er bara algjört steikhús. Stelpur, eruð þið ekki til í að deila smá ábyrgð, þið ykkar sem hafið hringt eigið það vel skilið að kíkja í kaffi og kleinur til mín einhverntíman, en ég veit ekki til þess að nokkur stelpa hafi hringt daginn eftir að fyrra bragði. Bítið bara á jaxlinn stelpur, hmmkaay…“ -ALLI.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *