Corvus Nocturnus / The Nocturnal Raven:

Hér hef ég setið í alla nótt, algjörlega iðjulaus, við það að reyna að finna mér eitthvað að gera. Þetta er örugglega einhver sú mesta tímasóun er ég hefi nokkru sinni staðið í. Ég er nú þegar búinn að hafna þeim hugmyndum mínum um að kannski væri sniðugt að:
* Lesa Njálu
* Lesa H.P.Lovecraft
* Spila hina ýmsu tölvuleiki
* Læra Latínu
* Skrifa smásögu
* Semja lag
* Horfa á Maltese Falcon, í hundraðasta skiptið
* Horfa á Casablanca, í milljónasta skiptið
* Hringja í gamlar konur og vekja þær
Ég virðist ekki vera hæfur til þess að gera upp við mig hvað gæti verið hvað skemmtilegast að gera svo að ég hef nú (klukkan korter í sex) ákveðið að blogga. It’s a sad sad life I live, but what’s even more sad is the fact that I am aware of it.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *